Allt sem þú þarft fyrir þinn heildsölurekstur

Sölugögn frá verslunum. Birgðastaða vöruhúsa. Rúntaplan fyrir söluteymi. Innbyggð gervigreind. Allt á einum stað, smíðað fyrir íslenska heildsala.

Rosetta Dashboard
Tengir saman kerfin sem þú notar

Sölugögn, birgðir og reikningagerð – allt tengt saman.

Samkaup
Festi
Hagar
Gorilla Vöruhús
Payday Bókhald

Hannað fyrir íslenskar heildsölur

Rósetta tengist kerfunum sem þú notar nú þegar og sameinar allt á einum stað.

Sölugögn verslanakeðja

Sölugögn frá Samkaupum, Festi og Högum streyma beint inn í Rósettu daglega. Sjáðu hvað selst, hvar og hvenær.

Vöruhúsatenging

Sjáðu birgðastöðu í rauntíma og pantaðu beint frá Gorilla og öðrum vöruhúsum. Engin fleiri símtöl eða tölvupóstar.

Bókhaldstenging

Sjálfvirk reikningagerð í Payday. Engin þörf á handslá inn pantanir í bókhaldskerfi til að fá greitt.

Pantanastýring

Hafðu umsjón með sölupöntunum og innkaupum frá birgjum á einum stað. Frá uppkasti til afhendingar, seldu og dreifðu vörum á einum stað.

Vöruskráning með gervigreind

Nýttu gervigreind til að flýta fyrir skráningu og umsýslu á vörum og birgjum. Les sjálfkrafa gagnablöð og stofnar vörur fyrir þig.

Rúntaplön

Skipuleggðu rúntaplön fyrir söluteymið þitt og bestaðu heimsóknir eftir sölugögnum. Heimsóknaskráning með myndum frá sölufulltrúum.

Hvernig þetta virkar

Komdu heildsölunni þinni í gang með Rósettu í þremur skrefum.

1

Uppsetning

Settu upp birgjana, vörurnar og söluteymið þitt, handvirkt eða með aðstoð gervigreindar.

2

Gögnin byrja að flæða

Sölugögn streyma sjálfvirkt inn frá verslunum. Stjórnaðu pöntunum og fylgstu með birgðum í rauntíma.

3

Fáðu innsýn, taktu ákvarðanir

Greindu sölutrend á vörum og verslunum. Rósetta lætur þig vita ef eitthvað þarfnast athygli.

Viltu sjá hvernig við getum nútímavætt heildsöluna þína?

Bókaðu kynningu og við sýnum þér hvað Rósetta getur gert fyrir þinn rekstur.

Bóka kynningu

Smíðað af fólki sem þekkir heildsölu

Stofnað í Reykjavík af teymi með mikla reynslu af heildsölu og smíði vefkerfa

Erlingur

Erlingur Þorsteinsson

Meðstofnandi og tæknistjóri

Hefur áratugareynslu af forritun og rekstri stórra kerfa

Gummi

Guðmundur Páll Líndal

Meðstofnandi og rekstrarstjóri

Guðmundur býr að mikilli reynslu í matvælum, heildsölu og rekstri.